top of page

NÝTT UPPHAF 

Djúpt og persónulegt námskeið með áherslu á sjálfsvinnu og umbreytingu.

Það gleður okkur að bjóða ykkur upp á námskeiðið Nýtt upphaf sem byggir á meðvirkni og áfallameðferð Piu Mellody (MÁPM) og Umbreytandi öndun (Transformational Breath). Í fyrsta sinn er námskeiðið haldið í náttúruperlu Bláskógabyggðar með aðgengi að sundlaug og heitum potti. Næringarríkur matur og gisting er innifalið í verði. Einstaklingsherbergi fyrir alla þátttakendur.

 

Það komast að hámarki sex einstaklingar á námskeiðið sem er bæði einstaklings- og hópmiðað. Námskeiðið er hannað til að meðhöndla áföll sem verða til í uppvexti og þeim áhrifum sem áföllin hafa á þroska einstaklings á fullorðinsaldri, betur þekkt sem meðvirkni. 

Rannsóknir hafa sýnt að Transformational Breath getur dregið úr streitu og kvíða, stutt við tilfinningalega úrvinnslu og aukið tilfinningalega vellíðan, bætt líkamlega heilsu, aukið skýrleika og einbeitingu, aukið orkuna, bætt svefninn og tilfinningalegt jafnvægi. 

Meðvirkni:

Meðferðarnálgun Piu Mellody byggir á sálgreiningu (e. psychoanalytic therapies), gestalt þerapíu (e. gestalt), fjölskyldukerfisfræði (e. family systems theory), tilfærsla í aldursgreiningu sjálfsins (e. transactional analysis), tilfinningalegri meðferðarnálgun (e. rational emotive therapy) ásamt því að styðjast við siðferðisþroskakenningu Erik Erikson og mannúðarkenningu Carl Rogers. Meðferðin snýr að  því að beita einstaklings og hópmeðferðarnálgun þar sem skjólstæðingurinn lærir að takast á við áföllin í uppvexti sínum og síðari birtingarmyndum í daglegu lífi.

Umbreytandi Öndun (Transformational Breath):

Breyttu því hvernig þú andar og þú breytir lífi þínu. Þetta eru orð Dr. Judith Kravitz stofnanda Transformational Breath stofnunarinnar. Við þurfum öll á andardrættinum að halda og eiga persónulegt samband við hann. Ef þú veist ekki hvernig þú andar er möguleiki að þú sért að loka á lífskraftinn sem býr nú þegar í þér. Þessi lífskraftur er falinn undir streitu og áföllum sem birtist með ýmsum myndum eins og þunglyndi, kvíða, vanmætti og ráðaleysi svo eitthvað sé nefnt. Í meðferðinni er andardráttur þinn greindur og þér leiðbeint hvernig þú innleiðir opin og heilbrigðan andardrátt og með því lærir þú einfalda leið sem þú getur tekið með þér til að takast á við lífið og verkefni þess með gjörbreyttum og áhrifaríkum leiðum. Andardrátturinn er lykilinnihaldsefnið að okkar sanna sjálfi.

Breathwork.webp

 

Berglind Magnúsdóttir hefur til fjölda ára beitt meðvirkni og áfallameðferð til skjólstæðinga sinna með áhrifaríkum hætti. Í hverri meðferð er þróun og þekking sem fæðist fram sem gerir meðferðina dýpri og áhrifaríkari hverju sinni. Ný viðbót við meðferðina er Transformational Breath, sem gerir meðferðina heildrænni og áhrifaríkari. Líkt og Pia Mellody, höfundur MÁPM áttaði sig á upp úr 1970 var að þær meðferðarnálganir sem voru í boði á þeim tíma voru ekki nægilega áhrifaríkar til að mæta hennar eigin þörfum og þörfum skjólstæðinga sinna. Í kjölfarið fór Mellody að þróa meðferðarnálgun með áhrifaríkum hætti og eru meðferðaraðilar nú víða um heim sem hafa hlotið þjálfun sem MÁPM meðferðaraðilar (sérfræðingar í áfalla- og meðvirknifræðum Piu Mellody) og nýta sér þessa meðferðarnálgun í vinnu sinni.

Námskeiðið Nýtt Upphaf er afrakstur margra ára þróunar þar sem Berglind hefur unnið að því að mæta síbreytilegum þörfum skjólstæðinga. Samkvæmt siðareglum félagsráðgjafa á Íslandi á félagsráðgjafi að hafa frumkvæði að því að þróa nýjar hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd. Berglind fetar í fótspor sinna kennara og hlustar af næmni og hugrekki á hvað er rétt hverju sinni til að leysa, lækna og sleppa sárum fortíðarinnar svo frelsi taki við hverjum þeim sem nýtur meðferðarinnar.

 

Við hverju má búast með þessu námskeiði?

Á þessu námskeiði skoðum við, stígum inn í og samþykkjum þau áföll sem skjólstæðingur hefur upplifað í uppvextinum. Samkvæmt rannsóknum, þá eru bein tengsl á milli áfalla (e. trauma) í bernsku og hvernig við tökumst á við raunveruleikann á fullorðinsaldri. Sá raunveruleiki sem við upplifum í dag er endurspeglun af fjölskyldumynstrum okkar í bernsku. Markmið meðferðarinnar er að fá rými til að opna augu okkar, hjarta og skynjun fyrir því sem hefur haft áhrif á okkur án dóms og ásakana.

Transformation, butterfly, purple, blue,

Nokkur merki þess að við erum að takast á við sársauka fortíðarinnar eru:

•    Vandi með að finna eigið virði „að innan“

•    Vandi með að setja heilbrigð mörk og standa við þau.

•    Vandi með að upplifa sig ekta

•    Vandi með að hlúa að löngunum sínum og þörfum.

•    Vandi með að upplifa gagnkvæm tengsl

•    Vandi með að upplifa jafnvægi í stað öfga og stjórnleysis.​

Sjónum er beint að því að þroska þann hluta sem hefur ekki fengið heilbrigðan farveg með innri barna vinnu, foreldrun og umbreytandi öndun. Meðferðin miðast við að auka færnina til að lifa í sátt og öryggi hið innra með sjálfsskilningi, ábyrgð og heilbrigðum mörkum.

 

Nokkur merki þess að við erum að sleppa tökunum á sársauka fortíðarinnar:

  • Ég skynja oftar eigið virði – ég er nóg.

  • Ég set heilbirgð mörk gagnvart sjálfri/um mér og öðrum og stend við þau.

  • Ég skynja oftar öryggi.

  • Ég treysti mér oftar.

  • Ég á auðveldara með að tjá þarfir mínar og langanir.

  • Mér líður oftar vel í kringum aðra og finnst ég tilheyra.

  • Ég upplifi oftar jafnvægi og sátt.

  • Ég er oftar jákvæð/ur.

  • Ég upplifi meiri gleði, kærleika og kraft.

Umsögn þátttakanda

"Mig hefði aldrei grunað hversu mikið meðvirknin mín skipaði stóran sess í mínu lífi og hversu skaðleg áhrif hún hafði á mig og þá sem standa mér næst. Í mínu tilfelli var meðvirknin mín orðin dauðans alvara og mikill skaðvaldur í lífinu og tilverunni.
Þökk sé Berglindar og hennar einstöku nálgun sem meðferðaraðili þá veitti hún mér ómetanlega innsýn í þá þætti sem urðu þess valdandi að ég þróaði með mér meðvirkni. Ég upplifði fullkomið traust til Berglindar í gegnum námskeiðið og hún mætti mér ávallt með skilning, kærleika og mildi, sem var akkúrat sem ég þurfti á að halda í gegnum þá sjálfsvinnu sem átti sér stað í minni leið að bata.
Á námskeiðinu öðlaðist ég skilning á sjálfri mér, sem ég hafði leitað eftir í meira en áratug og í fyrsta skipti upplifði ég mig sem heilan og heilbrigðan einstakling. Verkfærin sem Berglind miðlaði til mín í gegnum námskeiðið hafa fylgt mér á hverjum einasta degi og ég öðlaðist nýtt líf og tilveran mín verður aldrei söm"...EBE

Næsta námskeið

 

Dagsetning: 21.–24. maí 2025

Staðsetning: Birkihof – The Sacred Seed Wellness Retreat - Syðri-Reykir 801

Þátttakendur: Hámark 6 einstaklingar

Leiðbeinandi: Berglind Magnúsdóttir, félagsráðgjafi MA

 

 

Innifalið í verði:

• Gisting í einstaklingsherbergi í 3 nætur

• Hollur og ljúffengur matur (morgunverður, hádegismatur, kvöldverður og       kaffitímar)

• Aðgangur að sundlaug og heitum potti

• Djúpt og persónulegt námskeið með áherslu á sjálfsvinnu og umbreytingu

• Náttúran, kyrrðin og tengingin

 

Verð: 249.000 kr

Ath. Flest stéttarfélög styrkja námskeiðið

bottom of page